Starfsleyfi til kynningar - Brenna og flugeldasýning við Fjósaklett í Vestmannaeyjum

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfis og flugeldasýningar til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • ÍBV – Íþróttafélag, Týsheimili, 900 Vestmannaeyjar, vegna brennu 31. júlí nk.við Fjósaklett, 900 Vestmannaeyjum – sjá slóð hér
  • ÍBV – Íþróttafélag, Týsheimili, 900 Vestmannaeyjar, vegna flugeldasýningar 1. ágúst nk.við Fjósaklett, 900 Vestmannaeyjum – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 31. júlí næstkomandi.