Starfsleyfi til kynningar - Brenna á Eyrarbakka

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfis og flugeldasýningar til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Sveitarfélagið Árborg, Austurvegur 2, 800 Selfoss, vegna brennu 20. júní nk. við bryggjuna á Eyrarbakka, 820 Eyrarbakka – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 1. apríl næstkomandi.