Starfsleyfi til kynningar - Kjúklingabúið Vor vegna alifuglabús að Vatnsenda og Nesey vegna bifreiða-, smur- og dekkjaverkstæðis.

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Kjúklingabúið Vor ehf.  Tanga, 803 Flóahreppur – starfsleyfis fyrir alifuglabú að Vatnsenda, 803 Flóahreppur – sjá slóð hér
  • Nesey ehf. vegna starfsleyfis fyrir bifreiða- smur- og dekkjaverkstæði að Suðurbraut 7, 804 Skeiða og Gnúpverjahreppur – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 5. desember 2019.