Starfsleyfi til kynningar - Brennur í Rangárþingi eystra og Vestmannaeyjum

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfis og flugeldasýningar til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Vestmannaeyjabær, Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjar, vegna brennu  31. desember nk. í gryfju við Hásteinsvöll, 900 Vestmannaeyjar – sjá slóð hér
  • Rangárþing eystra, Austurvegur 4, 860 Hvolsvöllur, vegna brennu  6. janúar nk. á opnu svæði við Seljalandsfoss, 861 Hvolsvöllur – sjá slóð hér
  • Rangárþing eystra, Austurvegur 4, 860 Hvolsvöllur, vegna brennu  4. janúar nk. á landi Kirkjulæks vestan við félagsheimilið Goðaland, 861 Hvolsvöllur – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 26. desember næstkomandi.