Starfsleyfi til kynningar - Brennur í Hrunamannahrepp og Rangárþing eystra

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfis og flugeldasýningar til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Hrunamannahreppur, Akurgerði 6, 845 Flúðir, vegna brennu  31. desember nk. við tjaldsvæðið á Flúðum, 845 Flúðum – sjá slóð hér
  • Hrunamannahreppur, Akurgerði 6, 845 Flúðir, vegna brennu  4. janúar nk. við tjaldsvæðið á Flúðum, 845 Flúðum – sjá slóð hér
  • Rangárþing eystra, Austurvegur 4, 860 Hvolsvöllur, vegna brennu  31. desember nk. neðan við Króktún, 860 Hvolsvöllur – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 24. desember næstkomandi.