Starfsleyfi útgefin – Vegagerðin og Jón Þór Ragnarsson Bifreiðaviðgerðir og bílaþjónusta

Starfsleyfi hafa verið gefin út hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit:

  • – Vegagerðin vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir viðgerðaraðstöðu eigin véla og búnaðar, Smiðjuvegi 14, 870 Vík. – sjá hér
  • – Jón Þór Ragnarsson vegna útgáfa starfsleyfis fyrir bifreiða- og vélarverkstæði, dekkjaverkstæði, Lindarskógi 1, 840 Laugarvatn  – sjá hér

Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar máli þessu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.

Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.