Móttaka umsóknar um starfsleyfi fyrir seiðaeldi að Götu

Umhverfisstofnun hefur móttekið, dags. 21. júní sl., umsókn frá Veiði- og fiskiræktarfélagi Landmannaafréttar um seiðaeldi að Götu í Rangárþingi ytra. Um er að ræða umsókn um starfsleyfi seiðaeldi urriða (Salmo trutta) sem er svo áframalinn á landi að Galtalæk þar sem hámarkslífmassi er 2 tonna á hverjum tíma.

Unnið er úr umsókn og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.

 

Hægt er að sjá frétt inni á vef Umhverfisstofnunar – sjá hér