Starfsleyfi til kynningar: Pit Stop ehf vegna dekkjaverkstæðis og smurþjónustu og Olís Arnbergi v/ afgreiðslustöðvar eldsneytis

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Pit Stop ehf. vegna starfsleyfis fyrir smurþjónustu og dekkjaverkstæði að Austurvegi 56, 800 Selfossi – sjá slóð hér
  • Olíuverzlun Íslands ehf. vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir bensínstöð með veitingasölu að Arnbergi, 800 Selfossi – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 24. júní 2019