Starfsleyfi til kynningar - Leo Seafood ehf vegna fiskvinnslu og The Beluga Operating Company ehf vegna fiskasafns og griðastaðar mjaldra

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Starfsleyfisskilyrði fyrir Leo Seafood ehf, vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir fiskvinnslu Garðavegi 14, 900 Vestmannaeyjum – sjá slóð hér
  • Starfsleyfisskilyrði fyrir The Beluga Operating Company ehf, Ægisgötu 2, Vestmannaeyjum vegna nýs starfsleyfis fyrir fiskasafn og griðastað mjaldra að Tangagötu 14, Vestmannaeyjum – sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 26. apríl 2019.