Starfsleyfi til kynningar

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru eftirtalin starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Lýsi hf. fyrir heitloftsþurrkunar fiskafurða og pökkun að Víkursandi 1, 815, Þorlákshöfn, sjá slóð hér
  • Lýsi hf. fyrir lifrarbræðslu, lýsisvinnslu, móttöku og geymslu lýsis Hafnarskeiði 28, 815 Þorlákshöfn, sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 22. febrúar nk.