Brennuleyfi útgefin

Eftirtalin brennuleyfi hafa verið gefin út hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit:

  • Mýrdalshreppur vegna brennu og flugeldasýningar 31. desember 2018 á eystri bakka Víkurár sunnan flóðvarnargarðs sjá slóð hér
  • Rangárþing eystra vegna brennu og flugeldasýningar 5. janúar 2019 á opnu svæði sunnan við Skógafoss sjá slóð hér
  • Rangárþing eystra vegna brennu og flugeldasýningar 5. janúar 2019 á landi Kirkjulæks, 200 m. vestan við félagsheimilið Goðaland sjá slóð hér
  • Vestmannaeyjabær vegna brennu 31. desember 2018 í Hásteins gryfju, 900 Vestmannaeyjum sjá slóð hér

Skilyrðin voru auglýst hér á heimasíðunni skv. ákvæðum í ofangreindri reglugerð og bárust engar athugasemdir við útgáfuna. Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar málum þessum til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.

Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.