Brennuleyfi útgefin

Eftirtalin brennuleyfi hafa verið gefin út hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit:

  • ÍBV íþróttafélag vegna brennu 4. janúar 2019 í Löngulág, 900 Vestmannaeyjum sjá afrit af brennuleyfi hér
  • Sveitarfélagið Ölfus vegna brennu 6. janúar 2019 á malarplani á tjaldsvæðinu í Þorlákshöfn sjá afrit af brennuleyfi hér
  • Sveitarfélagið Ölfus vegna brennu 31. desember 2018 á óbyggðu svæði við enda Óseyrarbrautar í Þorlákshöfn sjá afrit af brennuleyfi hér
  • Hjálparsveitin Tintron, Grímsnes- og Grafningshreppi vegna brennu og flugeldasýningar 31. desember 2018 á malarplani við Sólheimaveg við Borg í Grímsnesi sjá afrit af brennuleyfi hér

Skilyrðin voru auglýst hér á heimasíðunni skv. ákvæðum í ofangreindri reglugerð og bárust engar athguasemdir við útgáfuna. Vakin er athygli á því að samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heimilt að vísa ákvörðun heilbrigðisnefndar málum þessum til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fer skv. lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kæra til úrskurðarnefndarinnar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 5. gr. ofangreindra laga.

Frestur til að vísa málinu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá því kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Kæra skal vera skrifleg og undirrituð.