Brennuleyfi til kynningar

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru eftirtalin starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfa til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:

  • Mýrdalshreppur vegna brennu og flugeldasýningar 31. desember 2018 á eystri bakka Víkurár sunnan flóðvarnargarðs sjá slóð hér
  • Rangárþing eystra vegna brennu og flugeldasýningar 5. janúar 2019 á opnu svæði sunnan við Skógafoss sjá slóð hér
  • Rangárþing eystra vegna brennu og flugeldasýningar 5. janúar 2019 á landi Kirkjulæks, 200 m. vestan við félagsheimilið Goðaland sjá slóð hér
  • Vestmannaeyjabær vegna brennu 31. desember 2018 í Hásteins gryfju, 900 Vestmannaeyjum sjá slóð hér

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 27. desember næstkomandi.