Starfsleyfi til kynningar - Björgun ehf. vegna efnistöku í Lambafelli

 

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru  starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi og á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn:

  • Starfsleyfisskilyrði fyrir Björgun ehf. vegna efnistöku og efnisvinnslu í Lambafelli, Þrengslum, 816 Ölfusi.

Einnig er þau að finna á heimasíðunni hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu HSL að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 26. september næstkomandi.