Starfsleyfisskilyrði til kynningar

Þrjú starfsleyfi voru til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Var um að ræða:

  • Starfsleyfisskilyrði fyrir Nesbúegg ehf. fyrir alifuglabú í Miklholtshelli II, Flóahrepp
  • Starfsleyfisskilyrði fyrir Högnastaðabúið ehf. / Flúðaegg, fyrir alifuglabú að Högnastöðum II, Hrunamannahreppi
  • Starfsleyfisskilyrði fyrir Reykjagarð hf. fyrir alifuglabú í Meiri-Tungu 4, Rangárþingi ytra

Starfsleyfisskilyrðin voru til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands að Austurvegi 65 á Selfossi og á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags með fresti til að skila inn athugasemdum er til 9. júní 2016.

Starfsleyfin hafa verið gefin út þar sem engar athugasemdir bárust.