Upplýsingar vegna öskufalls og eldgossins í Grímsvötnum

Hér að neðan má finna leiðbeiningar um viðbrögð almennings þar sem öskufall er.

Unnið er að því að flytja svifryksmæla á svæðið sem verður fyrir mesta öskufallinu og mun Umhverfisstofnun setja upp fyrsta mælinn á Kirkjubæjarkalaustri um leið og færi gefst. 

Átappað drykkjarvatn mun verða til dreifingar í stjórnstöð almannavarna í Vík og Kirkjubæjarklaustri og jafnvel fleiri stöðum. 

Í framhaldinu mun Heilbrigðiseftirlitið mun fylgjast með neysluvatni á svæðinu með sýnatöku á vatnsbólum og vatnsveitum.

Frekari leiðbeiningar og fróðleik um viðbrögð vegna eldgosa má finna á heimasíðu Almannavarna, Landlæknis, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands mun leitast við að setja jafnóðum inn nýjar upplýsingar um neysluvatn og svifryk meðan á eldgosinu stendur.