Starfsleyfi til kynningar - steypustöð Vestmannaeyjum

Starfsleyfisskilyrði eru til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun:

Fyrir 2-Þ ehf. vegna færanlegrar steypustöðvar og steypustöðvar að Flötum 7, Vestmannaeyjum, – skilyrðin eru aðgengileg á skrifstofu Vestmannaeyjabæjar

Starfsleyfisskilyrðin er hægt að nálgast á slóð hér

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 14. mars, þeim skal skila skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi.