Starfsleyfi til kynningar - fráveita Brautarholti

Starfsleyfisskilyrði eru til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun:

Fyrir hreinsivirki fráveitu í Brautaholti, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, – skilyrðin eru aðgengileg á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Starfsleyfisskilyrðin er hægt að nálgast á slóð hér

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. febrúar 2018, þeim skal skila skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi.