106. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands

106. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands haldinn þriðjudaginn 19. febrúar 2008, kl. 13.00 að Austurvegi 56, Selfossi

 

Mætt: Jón Ó. Vilhjálmsson, Ragnhildur Hjartardóttir, Guðmundur Geir Gunnarsson, Viktor Pálsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Elsa Ingjaldsdóttir.

Gunnar Þorkelsson og Pétur Skarphéðinsson boðuðu forföll.

 

1)      Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu.

a)      Starfsleyfi

Nr.

Nafn

Póstfang

Starfsleyfi

1

Tyrfingsson

800 Selfoss

Endurnýjun

2

Þjónustustöðin

800 Selfoss

Endurnýjun

3

Selós

800 Selfoss

Endurnýjun

4

Fagus hf

815 Þorlákshöfn

Endurnýjun

5

Hveragerðisbær v/ Gámavöllur

810 Hveragerði

Endurnýjun

6

Bensínorkan ehf v/Selfossi

800 Selfoss

Endurnýjun

7

Bílaverkstæði Jóhanns ehf.

810 Hveragerði

Endurnýjun

8

Olympus, heilsurækt

860 Hvolsvöllur

Endurnýjun

9

Hafið Bláa ehf.

815 Þorlákshöfn

Endurnýjun

10

Fótaaðgerðarstofa Sigurbjargar

800 Selfoss

Endurnýjun

11

Glaðningur ehf.- Ingólfskaffi, Ölfusi

801 Selfoss

Eigendaskipti

12

Þvottahús Grundar og Áss ehf.

810 Hveragerði

Ný starfsemi

13

Atlantsolía ehf  Hveragerði

810 Hveragerði

Ný starfsemi

14

Garðyrkjustöðin Akur, Grænjaxlarnir ehf

801 Selfoss

Endurnýjun

Starfsleyfin samþykkt án athugasemda.

 

b)     Flugklúbbur Selfoss.

Lögð fram auglýst starfsleyfiskilyrði fyrir Flugklúbb Selfoss. Athugasemdir bárust frá Lex lögmannsstofu, dags. 7. febrúar og samhljóða, bréf dags. 6. febrúar frá Páli Stefánssyni og Eddu B. Ólafsdóttur, Stuðlum, Helgu Jóhannesdóttur og Hannesi Stefánssyni, Vogi og Gunnari M. Friðþjófssyni, Skjálg. Farið yfir innsend erindi og urðu almennar umræður um málið.

 

Eftirfarandi bókað:

“Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir að gefa út auglýst starfsleyfisskilyrði og felur framkvæmdastjóra að svara innsendum athugasemdum.”

 

2)      Samþykktir og gjaldskrár.

a)      Samþykkt um fráveitur og rotþrær í Bláskógabyggð.

Samþykkt án athugasemda.

 

b)     Gjaldskrá fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í Bláskógabyggð.

Samþykkt með fyrirvara um að nr. (eða dags.) samþykktar verði sett í gjaldskránna.

c)   Breyting á gjaldskrá fyrir hundahald í Bláskógabyggð.

Samþykkt án athugasemda.

 

d)    Gjaldskrá fyrir sorphirðu í Mýrdalshreppi.

Samþykkt með fyrirvara um að nr. (eða dags.) samþykktar verði sett í gjaldskránna.

 

3)      Starfsemi og rekstur eftirlits.

a)      Reglubundið eftirlit.

Lagt fram til upplýsinga listi yfir reglubundið eftirlit frá síðasta fundi.

 

b)     Málaskrá.

Lögð fram til upplýsinga.